miðvikudagur, janúar 03, 2007

Gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár elsku krúttin mín!

Hæ hæ, skemmst frá því að segja að ég átti yndisleg jól í faðmi fjölskyldunnar og allt var eins og best var á kosið. Brói var svo hjá okkur á milli jóla og nýárs og það var eflaust besta gjöfin. Ælupestarpúkinn heimsótti okkur og hafa allir heimilismenn lagst fyrir djöflinum ef undanskilin er húsbóndinn á heimilinu....enn sem komið er. Áramótin hefðu orðið frábær ef allt hefði farið eins og það átti að gera. Ég var búin að vera heillengi að plana matarboð enda mamma og pabbi að koma til okkar, sjávarréttasúpa í forrét með humri, rækjum og hörpudisk...mmmm, heppnaðist frábærlega. Einiberjakryddað lambalæri pottsoðið í hvítvíni, rauðvínssósa og sætar kartöflur og ferskt salat í aðalrétt. Allt gekk vel...eldri sonurinn nýskriðinn upp úr tveggja daga ælu og niður og sá yngri með hana!! Á meðan við nutum lystisemda matarins dundu ælu- og sullhljóðin yfir okkur og gestgjafinn....ég....hélt um enni lasna barnsins og afsakaði mig aumingjalega. Það versta við þetta allt saman var þó það að ég sjálf þurfti að leggjast fyrir á meðan á skaupinu stóð og þaðan átti ég ekki afturkvæmt. Ég var komin með ælupestina líka og lá því uppi í rúmi þegar nýja árið gekk í garð, ég skalf og hristist og vældi úr beinverkjum. Þvílík byrjun. Hálftíma seinna skilaði ég svo af mér öllum góða matnum...verður sennilega í síðasta skipti sem ég borða sjávarréttasúpu....gúlp. Þessi áramót voru því eiginlega eins sorgleg og ömurleg og hægt væri að hugsa sér, fyrir utan matinn og félagsskapinn, sem var góður. :O)
En kannski er það satt sem sagt er....Fall er fararheill . . . verð að minnsta kosti að vona það. :O)
Takk fyrir gamla árið elsku krúttin mín, ég vona að þið hafið það gott.
Kveðja, Turner.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ, þessi lýsing á áramótunum hljómar ekki vel, en ef ég þekki þig rétt þá verður þetta fljótlega gleymt og grafið og horft brosandi fram á við. Vona að nýja árið færi ykkur öllum gleði og hamingju og takk fyrir gamla árið. Hittumst hressar á mánudaginn á fundinum.
Baráttukveðja, Stína